Ég er nokkuð viss um að það er ákveðinn fjöldi einstaklinga á þessu áhugamáli sem nýtir sér stera af einhverri sort. Til að mynda hafa flestir af mínum lyftingarfélögum á einhverjum tímapunkti prófað stera. (Mjög lítill hópur).
Einnig er vert að geta þess (þó svo að ég geri ráð fyrir að þú gerir þér vel grein fyrir því) að aðeins brotabrot fólks sem stundar þetta áhugamál (já, ég kýs að segja að vafra nokkra daga vikunnar á /heilsa sé að stunda það) commentar hér og skrifar eitthvað. Flestir lesa bara efnið sem kemur hingað inn.
Ég ætla ekki að fara að nefna nein nöfn en ég persónulega þekki nokkra Huganotendur sem stunda þetta áhugamál og hafa nýtt sér stera, og þá erum við að tala um nokkra gaura í einhverju krummaskuði úti á landi. Að mínu mati eru yfirgnæfandi tölfræðilegar líkur á því að á þessu áhugamáli séu þó nokkrir einstaklingar sem hafi nýtt sér / séu að nota stera.
Those are my two cents.