Jú jú, ég skil þann part alveg. Ég er ekkert að dissa náungan eða það sem hann hefur afrekað. Það eina sem ég er að benda á, er að þessar myndir eru oft soldið fyndnar. Það er að segja ef maður hefur húmor fyrir því.
Ég er ekkert að meina það þannig að ég sé að gera lítið úr fólkinu á myndunum. Bara fyndnar þessar vöðvapósu myndir. Það er allt og sumt.
Ég sé fyrir mér Lance Armstrong ( þar sem það er mitt sport ) pósa og sýna klálfa og læravöðva, svona ýkt alvarlegur á svipinn. Þú skilur, mér þætti það alveg rosalega fyndið. Ég myndi samt bera ómælda virðingu fyrir honum alveg eins og áður.