Hann tók mest 235kg í keppni að því er best ég veit, á sjónvarpsmóti í desember 1984.
Hafðu í huga að bekkpressusloppar voru ekki komnir til sögunnar þá, en þeir virðast gefa þeim bestu 30-50kg.
Auk þess hætti hann að keppa í kraftlyftingum um þetta leyti og sneri sér alfarið að aflraunum, en honum fór verulega fram í styrk eftir þetta, þannig að gera má ráð fyrir að hann hefði getað meira ef hann hefði keppt aftur t.d. í kringum 1990.
Hann dó árið 1993.