þó oftast í vinnunni, s.s , ég er 16 ára unglingur. Fyrst
þegar ég lenti í þessu var ég í vinnunni á afgreiða á
kassa, og fékk ég þessa ógeðslegu tilfinningu eins og mér
væri að svima og varð mér mjög heitt í andlitinu og
öndunarerfiðleikar. Ég fékk eitthvern til þess að leysa mig
af og dreif mig upp á klósett til þess að jafna mig, en mig
leið ekkert svakalega vel vegna þess að ég var kominn með
svo hrikalega hraðann hjartslátt. Hringt var á sjúkrabíl og
í endann áður en sjúkraliðarnir komu var ég nánast byrjaður
á kúgast, útaf hröðum hjartslætti býst ég við. Þeir komu og
báðu mig um að koma með sér í bílinn, ég einfaldlega gerði
það.
Þegar ég var kominn uppá spítala gáfu þeir mér eitthvað
róandi við hjartslættinum býst ég við og ég varð mjög
slappur.
Eftir þetta hef ég verið að lenda í þessu inn á milli en ég
hef ekki nennt að standa í að fara uppá spítala þannig að
ég fer alltaf út og róa mig niður með ferskt súrefni,
heppnast alltaf, því hjartslátturinn róast og allt verður
gott. En í dag var ég í vinnunni á kassa og þá fór ég að
finna fyrir þessari ógeðslegu tilfinningu eins og hræðsla
eða kvíði væri að koma yfir mig og síðan magnaðist þessi
tilfinning alltaf meira og meira. Ég fékk eitthvern til
þess að leysa mig af síðan fór ég út og slakaði á eins og
alltaf. Það heppnaðist auðvitað. En þetta er farið að
gerast oftar núna og þá sérstaklega þegar ég er t.d. heima
í tölvunni, þá kemur allt í einu svona öndunarerfiðleikar
og þá þarf ég alltaf að drífa mig út annars finnst mér eins
og ég sé að fara að kafna. Þetta finnst mér mjög pirrandi.
Það er oftast þetta tvennt sem kemur upp þegar þetta er að
koma yfir mig sem er öndunarerfiðleikar og hraður
hjartsláttur. Hjartað hamast og hamast og auðvitað getur
maður ekkert annað gert heldur en farið út og andað rólega.
Eftir fyrsta skiptið var mér gefið lyf sem heitir
Metoprolol (ef Metoprolol er ekki til tek ég Seloken) Ég
tek eina töflu á dag og finnst mér furðulegt að ég sé að fá
svona hraðan hjartslátt þegar ég er á þessum lyfjum. Mér
var skaffað þessi lyf af því að þeir héldu að þetta væri
bara eitthvað í ósjálfráða taugarkerfnu sem ég tek
einfaldlega eftir að það sé ekki. Ég er búinn að fara í
ótal hjartalínurit og blóðþrýstingsmælingar en það er allt
frekar eðlilegt. Kvíðinn kemur ekki alltaf með
öndunarerfiðleikunum, oftast koma öndunarvandamálin bara.
Inn á milli kemur eitthver tilfinning eins og kvíði með
öndunarerfiðleikunum. Ég hef meðal annars líka verið með
svolítið mikið af hjartatruflunum á síðastliðnu ári eða
svo, og oft þegar ég dreg djúpt inn andan kemur
hjartatruflun. Koma kannski svona u.þ.b. 0-3
hjartatruflanir á dag stundum fæ ég fleiri heldur en það.
Mér finnst þetta mjög óþægilegt.
Byrjaði ofsakvíði svona hjá einhverjum hérna? Veit
nefnilega ekki hvort þetta sé ofsakvíði. Foreldrar mínir
eru alltaf að reyna að sannfæra mig um að ég þurfi ekki að
fara til læknis og segja alltaf að þetta sé bara tölvann og
vöðvabólga o.s.frv. Get auðvitað látið þau panta tíma ef ég
tek þetta mjög alvarlega fyrir við þau. Er hjá hjartalækni
sem ég mun fara til aftur þegar ég verð 18 en ég stórefast
um að þetta sé eitthvað í hjartanu vegna þess að þeir sjá
aldrei neitt að mér þar.
-Iseedeadpeople
you shut your mouth when you're talking to me!