Ég prófaði þetta í smá tíma, ekkert neitt svakalega lengi samt en ég var að fýla þetta í botn. Samt alveg must að hafa einhvern með þér að æfa afþví maður þarf einhvern til að spotta í öllum æfingunum því þetta gengur út á að fara í algjört failure.
Og já þetta virkar án stera, öll prógröm virka án stera, það er bara spurning um að halda sér við efnið nógu lengi til að græða eitthvað á þeim í staðin fyrir að mæta í ræktina í mánuð og hætta svo og byrja svo aftur 3 mánuðum seinna í mánuð og hætta svo aftur o.s.fv.
Tékkaðu á þessu
http://www.bodybuilding.com/fun/dorian-yates-blood-guts-6-week-trainer.htmMá nefna sem dæmi að Kris Gethin sem er að æfa þarna með Dorian er natural og segist hafa stækkað mest á HIT prógrammi sem hann notaði lengi vel.
Bætt við 10. mars 2011 - 17:56 En já ástæðan fyrir því að ég prófaði þetta bara í um mánuð og hætti svo var að ég gat ekki mætt lengur með æfingafélaganum og þurfti að skipta um prógram.