Finnst ég hafa verið að fá skiptar skoðanir á þessu og væri gott að fá að vita það í eitt skipti fyrir öll.
Hver finnst ykkur vera áhrifaríkasta leiðin til að framkvæma þessar æfingar þegar þið eruð að brenna ykkur niður?
…
Þú talar eins og það sé bara hægt að gera annaðhvort HIIT eða langhlaup til að brenna fitu.
Er það endurteknar æfingar við mikið álag í stuttan tíma eins og sprettir eða lítið álag í langan tíma eins og langhlaup?
Hver er áhrifaríkasta leiðin við að brenna fitu?Þetta er önnur spurning líka.
Farðu ekki að grenja.
“Hver er áhrifaríkasta leiðin við að brenna fitu?”
Þetta er önnur spurning líka.
Kannski smá áróður, en mjög mikill sannleikur í þessu. Þú brennir fitu betur með HIIT heldur en að hlaupa á sama hraða í marga tíma.
Af hverju þarf að miða HIIT við að jogga á sama hraða í marga tíma? Það er líka hægt að taka rösk 6-10km hlaup á góðum hraða upp og niður brekkur.
Ég var að bera saman spretthlaup og langhlaup eins og spurt var um í þráðinum, þetta var aldrei spurning um annaðhvort eða. Það eru vissulega til ótal aðrar leiðir og aðferðir.