Ef við berum þetta saman við hlaup eins og þú bentir á þá er brennslan auðvitað gífurlega fjölbreytt.
Eins og með hlaup þá geturu synt löturhægt bringusund og brennt lítið(sbr. labb) eða synt skriðsund/flugsund eins hratt og þú getur(sbr. spretthlaup).
Sund getur verið frábær brennsla, t.d ef þú lotuskiptir því líkt og þú myndir gera með spretthlaup(HIIT,Tabata og sett virkar allt fyrir sund líka) eða tækir það á jöfnum hraða yfir langt tímabil líkt og í langhlaupi.
Stærsti kosturinn við að synda er hversu varlega það fer með liðina.