ZMA er yfirleitt tekið fyrir svefn og áttu ekki að vera buinn að éta 2 tímum fyrir það, eina sem ég fann virka var ´dypri svefn og fucked up draumar er var alltaf aðeins ferskari kannski bara placebo en allavegna allt í lagi svosem
ZMA er ekki testasterón booster en er samt eitt besta fæðubótarefnið sem þú finnur, sink er mjög mikilvægt til að halda testasteróninu jöfnu í líkamanum og þá sérstaklega hjá íþróttamönnum sem eru að reyna að halda því sem hæstu í gegnum æfingarnar. Plús það að það hjálpar þér að sofa betur sem er bara ekkert nema gott mál.
Búinn að prófa wikipediu? Það eru magnesíum, zink og vítamín B6 í þessu. Ef þú borðar hollan mat er frekar ólíklegt að þig skorti eitthvað af þessu, hvað þá ef þú tekur fjölvítamín.
Miklar líkur ef þú stundar mikið af æfingum að auka zinc geri þér gott.
Ef þú tekur þetta fyrir svefn (ekki nauðsynlegt þó það standi á dollunni) þá eru líka ágætislíkur á mjög hressandi draumum út af magnesíumskammtinum. - Getur hjálpað til með lengri og dýpri svefn.
Draumarnir einir og sér eru þess virði ef þú spyrð mig. Ég tek þetta reglulega inn. En aðal “performance” virknin skilst mér að sé í zincinu (vegna þess að margir íþróttamenn fá ekki nóg af því).
Ég hef nú ekki prófað sjálfur en vinur minn sagðist prufa þetta fyrir svefn og hann bara gat ekki sofnað, varð bara allt of víraður. Örugglega placebo effect samt þar sem eiginlega allir hérna hafa góða reynslu af þessu. Svo flokkast þetta undir “náttúrulegt” þannig að þetta ætti að vera gott fyrir mann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..