Ég bara drekk ekki, því ég hef ekkert gaman af einhverju gerviástandi. …Sem e.t.v. skapar vandræði, og svo er það líka kostnaðarsamt. Þegar ég var yngri þá heyrði ég samræður eldri stráka og annar þeirra sagðist hafa eytt öllum sumarlaununum í áfengi.
…Það fannst mér gjörsamlega botinn á aumingjaskapnum og ákvað að ég vildi frekar eiga mín sumarlaun inni á reikningi, sem gefa síðan af sér góða vexti.
Svo ef ég hef fengið mér eitthvað smá í glas, þá finnst mér æfingarnar ekki ganga eins vel og þær eiga að gera.
…Þannig, já, ég hef ekkert verið að standa í þessu.
Það er enginn tilgangur með lífinu ….það ert þú sjálf/ur sem skapar hann