“Stofnfundur Kraftlyftingafélags Akraness var haldinn í íþróttamiðstöðinni á Akranesi í dag. Stofnfélagar voru yfir 40 karlar og konur. Félagið hefur þegar sótt um aðild að ÍA og Kraftlyftinganefnd ÍSÍ og fyrsti formaður var kosinn Hermann Hermansson. Framundan er vinna við að byggja upp öflugt félag og góða aðstöðu til æfinga. Stjórn KRAFT óskar Skagamönnum til hamingju og velkomin í hópinn. Það verður gaman að fylgjast með þeirra keppendum á næstu mótum.” tekið af kraft.is

Hvað finnst ykkur um þetta :D?

———————————————————

http://kraft.is/myndir/Kraft_Aks.jpg
Fremst er formaðurinn Hermann Hermansson
Til hægri má sjá Auðunn Jónsson silfurverðlaunahafa frá Indlandi…