Nei, það tengist því alls ekkert.
Fullt af fólki heldur það samt, eins og vinir mínir hér í DK þegar maður er eitthvað að tala um hve mikið slit maður sé kominn með og þá segja þeir að þetta sé bara af því að ég æfi vitlaust og of þungt, hehe.
Þetta getur komið ef þú fitnar(Algengt á konum þegar þær verða óléttar), en ég er ekki feitur, en ég er heldur ekki neitt ofurmassaður. Ég held að húðin á mér sé einstaklega léleg í því að teygja sig, því ég hef séð ný slit á vöðvum poppa upp nokkrum klukkutímum eftir lyftingar.
Þó að ég væri alveg til í að trúa að það sé bara útaf svo geysilegri stækkun á vöðvanum, þá er það því miður ekki, hehe.. Bara pumpið sem tekur á húðinni, held ég.