Ég er ekki viss um þetta, og það væri frábært að fá leiðréttingu ef þetta er vitlaust, en ég held að alkóhól hafi engin bein áhrif á styrk ef það er tekið inn í miklu magni. Það sem mér dettur í hug, hins vegar, er að þú gætir verið að bæta á þig því sem þú varst að brenna.
Alkóhól er eiginlega taugaeitur og ástæðan fyrir því að þú drepst af of miklu magni er að það lamar taugakerfið algjörlega. Ég get ekki séð hvernig hægvirkara taugakerfi útaf einvherju ægilegu fylleríi hefur áhrif á uppbyggingu vöðva, en ef svo er væri ég, eins og ég sagði, til í að vita hvernig.