Methandrostenolone eða Dianabol er merkilegt efni. Þetta er elsti anabólíski sterinn og hefur reynst gefa mikið af sér í gegnum tíðina. Málið með bolann er að hann inniheldur ekkert testasteron eins og t.d. testi eða susti eða aðrir sprautusterar heldur er hann sameindalyf sem gerir það að verkum að testasterón framleiðsla þín eykst til muna.
Hún eykst ekki eins mikið og hún gerir á Sustanon til dæmis og er það gott að vissu leiti.
Það að auka testasterón framleiðsluna hefur einnig í för með sér aukningu líkamans á framleiðslu estrógens, sem er kvenhormón (testasterón er karlhormón), þegar þú lýkur loks kúrnum droppar testasterón framleiðslan þín niður, en það getur vel verið að estrógen framleiðsla líkamans haldi áfram að aukast, og ýmsir fylgikvillar eins og virkir mjólkurkirtlar og minnkun eistna geta gerst.
Dianabol er gott efni til að byggja upp vöðvamassa, margir að sterkustu mönnum heims hafa komist langt á því einu saman og hafa ekki snert sprautustera. Ég ætla ekki að hafa nein nöfn uppi en einn af sterkustu mönnum íslands í dag notar dianabol eingöngu.