Eina efnið sem er löglegt og virkar að einhverju ráði er koffín. Þú getur þess vegna allt eins drukkið te og það er í raun betri kostur. Hins vegar virkar koffín ekki eitt og sér, þau virkar aðeins samhliða hreyfingu og breyttu matarræði. Koffín virkar fyrst og fremst vegna þess að þú getur lagt meira á þig á hlaupabrettinu/þrekhjólinu.
Lykillinn af því að léttast er fólginn í því einu að innbyrða minna af orku en þú brennir. Þetta má gera með því að borða minna, hreyfa sig meira eða gera hvort tveggja (sem er oftast vænlegasta lausnin).
Mæli með því að þú kynnir þér frekar hvaða gerðir æfinga virkar best til þess að brenna orku (HIIT æfingar til dæmis) og hvað þú getur tekið úr matarræði þínu til þess að minnka hitaeiningafjölda án þess að það bitni um of á næringu (vítamínum og steinefnum, taktu fjölvítamín og lýsi).