Ég get ekki séð að það skipti höfuðmáli. Grundvallaratriðið þegar kemur að því að léttast er að nota meiri orku en þú innbyrðir. Þetta má gera á tvo vegu, hreyfa sig og brenna meira og eða borða minna. Hvort þú borðar 500 hitaeiningar fyrir eða eftir æfingu skiptir ekki höfuð máli, heildarfjöldi hitaeininga sem þú borðar og brennir er það sem skiptir máli.
Hins vegar er ýmislegt annað sem skiptir miklu máli, til dæmis hvers eðlis æfingin er.
HIIT æfingar eru almennt álitnar besta til þess fallnar að léttast.