Sparaðu peninginn og keyptu frekar wheyprótein og gainer, taktu vel á því í gymminu, þannig að þú finnir brennisteinslyktina í helvíti, og ekki æfa oftar en 3 í viku.
Málið er að ekkert af þessum töfra efnum virka það vel. Eina töfra efnið sem virkar eru sterar, en það er líka einmitt alvöru töfra efni. Ímyndaðu að þú sæir auglýsingu fyrir stera sem fæðubótarefni, upp hypaða og brjálaða eins og margar þessar auglýsingar eru; en munurinn væri bara sá að það væri ekki lygi. Í samanburði virkar hitt dótið ekki neitt.
Ég held persónulega að þeir sem nota ekki stera ættu að dusta rykið af old timers fræðunum, eins og mjólk+hnébeygjur. Því þessi prógrömm voru þróuð áður en notkun stera varð eins mikil og hún er í dag.