Hver er til í að detta í smá Keto?
Er kannski einhver sérfræðingur hér, hve lengi ,tips ofl.
Var að spá í að testa í svona mánuð að detta í keto, verður maður þreyttur allan daginn eða hvernig er það, er einhver með reynslu af þessu ?
Ok , þakka þér fyrir það - ég myndi lesa allt um þetta en ég bara fæ mig ekki til þess :)
Er alveg hægt að halda einbeitingu í skólanum meðan maður er á ketosis ?
Þú ættir að geta gert það, svo framarlega sem þú borðar næga fitu. Ég var í prófum á sama tíma og ketophasið mitt og ég fékk hæstu einkunnirnar mínar síðan ég byrjaði í framhaldskóla.
Helduru að afl&snerpa í íþróttum eigi eftir að minnka eitthvað verulega ? (er að æfa körfubolta)
Hate to break it to you, en körfubolti er of ‘intense’ hreyfing og mun leiða til vöðvataps. Þegar hjartsláttur fer yfir ákveðið mark(misjafnt eftir fólki, en yfirleitt 120-135 skiptir hann úr því að nota fitu sem orku í að nota kolvetni sem orku. Þetta gildir ekki bara í ketosis, heldur alltaf. Þegar líkaminn hefur enginn kolvetni breytur hann amínósýrum(vöðvum) í glúkósa. Líkaminn getur ekki breytt fitu í glúkósa.
Er í lagi að borða mjólkurvörur á ketosis matarræði ? s.s. hreint skyr.
Nei. Enginn sykur.