Er alveg sammála með Hammer Strength. Þegar ég hef komist í þannig hef ég fílað þau vel. Svo er ég líka sammála með að vélar ná oft að einangra vöðva miklu betur. Finn það alveg þegar ég tek æfingar í vélum, miklu meiri spenna á vöðvanum sem æfinging á að taka á. En smith vélinni kem ég ekki nálægt. Hef illan bifur á því tæki.
Annars eru fæst þessi tæki þar sem ég æfi. Enginn vél sem ég myndi kalla dýfuvél t.d., er að vísu svona Gravitron vél en það er eiginlega allt önnur hreyfing finnst mér.
Hvar ertu annars að æfa?
www.brotherhoodofiron.com