Hverskonar spurning er þetta, auðvitað ekki.
Annars getur stam verið mjög alvarlegt vandamál, heftir fólk gríðarlega og veldur miklu óöryggi.
Littla frænka mín stamar mjög ílla, hún segir nánast aldrei neitt að fyrra bragði og svarar venjulega aldrei með öðru en já eða nei. Maður þekkir hana ekkert af viti vegna þess að hennar karakter fær aldrei að skína. Örugglega mjög oft sem hana langar til að segja eitthvað eða dettur eitthvað sniðugt í hug en brennur inni með að segja það vegna þess að það er auðveldara að þegja.