Var að skoða æfingarprógrömm á netinu og fann þetta www.guyworkout.com/workout.php Allir virðast rosalega sáttir með þetta og ég googlaði þennan Jason Ferruggia og hann virðist vera one of the good guys. Öll ráð vel þeginn.
Myndi giska á að þetta sé bara ekkert betra en allt hitt. Til endalaust af svona “I gained 21598456 kilos of muscle in 3 days while going down to 0,1% bodyfat.”
Já, ég hélt það líka þangað til ég fór að googla þennan gaur, hann hefur gefið út HELLING af góðu efni virðist vera. Maður er samt alltaf pínu skeptískur. Vildi fá smá auka álit.
Það eru engin ‘secrets to build muscle’ og þú ert ekki að fara að bæta á þig 12 kg af vöðvum á 12 vikum. Þú nærð kannski 3 kílóum ef allt er 100% hjá þér og það er frábær árangur. Haltu bara áfram því sem þú ert að gera, ef það hefur verið að virka það er að segja og ekki látast blekkjast af einhverju svona.
Nei ég býst ekki við að lesa þessa bók og gaina 20kg og fara í niðrí 5% bf. Málið er bara að maður er ekki alltaf nógu skipulagður á æfingum, kannski að þetta hjálpi manni við það :S Taki rétt reps og þyngdir til að stækka sem mest og svoleiðis hluti. Hef til dæmis bæði heyrt að A) taka um 12 reps 4 set til að blása út og að B) taka sem þyngst mesta lagi 4-8 reps 3 set Æj, held ég sé að reyna að réttlæta fyrir mér að kaupa þetta. Þoli ekki þegar ég verð svona spenntur fyrir einhverju.
Ég er búinn að fá mér þetta, lítur nú bara vel út, fékk fullt af auka bókum með. Er búinn að renna yfir æfingarprógöminn og hvað hann er að segja og þetta virðist alveg make-a sens. Núna er bara að djöflast í ræktinni og sjá hvort ég verði ekki hrykalegur eftir 3 mánuði.
Þetta var á tilboði svo ég fékk þetta á 77$, sem er nú ekki mikið miðað við hvað maður eyðir í prótein, kreatín, ofl ofl. Fékk líka slatta af bókum með þessu, og svona æfingarprógram í tölvuna og læti. Búinn að fara á 2 æfingar síðan. Svo get nú ekki farið að vouce um einhvern árangur. En ég er að drepast úr harðsperrum :) svo vonum baraþ að besta
Flott hjá þér að kaupa þessa bók og experimenta með þetta, um að gera. Viturlegra en að eyða 5 falt meiri pening í prótein dúnk. Svo getur alveg gainað meira en 3 kg á 12 vikum. Einhverjir eru eitthvað neikvæðir á þetta, láttu það ekki á þig fá, gangi þér vel.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..