Þau eru ekki nauðsynleg. Ekki láta eins og kjáni. Þau hjálpa, en þau eru jú fæðubótarefni. Efni sem þú bætir í nú þegar hollt og gott matarræði sem mun skila þér meirihlutanum af niðurstöðum þínum. Meina, hvernig hefði fólk annars getað orðið massað áður en þau urðu til?
Ef þú ert með stera á annaðborð eru fæðubótarefni óttalegt djók. Svo ef þú ert að skilgreina HUGE eitthvað eins og nútíma bodybuilders hef ég engann áhuga á því, þar sem þeir eru ógeðslegir. Ég þekki fólk persónulega sem lítur betur út en andskotinn og er komið á fimmtugsaldur sem hélt að kreatín ylli skapsveiflum. Svo afsakaðu mig ef ég dreg nauðsyn þeirra í efa. Annars nota ég þau sjálfur auðvitað, þau stytta leiðina og gera hana þægilegra.
Ef að þú ert kominn með mataræðið í gott ástand og ert að íhuga að fá þér fæðubótarefni til að auðvelda þér þetta þá mæli ég með www.bodybuilding.com gott úrval og ég veit ekki um neina síðu sem býður betra verð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..