Maður getur alveg verið grannur að eðlisfari, en ef rétt er farið að því geturðu alveg þyngst á good shit tíma. Ég sjálfur er 1.79, eins og þú veist, og hef þyngst um 6-7 kg á mánuði, og tel ég það helvíti fínt miðað við hversu grannlega vaxinn ég er. Og já, mér finnst þú líka frekar grannur, hefur boxara útlitið sem felst í þessu fitness útliti, hefur varla snefil af fitu á þér, en já, 70kg er lítið í mínum augum, og gætirðu örugglega auðveldlega þyngt þig í 80, ég veit allaveganna að maður sem er 185 ca. á að vera í kringum 90 kílóin, þá ættir þú alveg að geta verið 80, það fer samt allt eftir því hvernig þú vilt líta út, og hvernig þú berð það.