Flest allt það sem við teljum óhollt er mjög ríkt af fitu og/eða kolvötnum. Samfélag okkar hefur þróast mörg þúsund sinnum hraðar en líkaminn. Líkaminn, mætti segja, er ennþá stilltur inn á aðstæður eins og þær voru fyrir nokkur þúsund árum. Fita er sérstaklega orkurík og hann vill fá fitu. Þar af leiðandi finnst okkur gott að borða fituríkan mat.