Mælt með því að taka þetta í vatn beint eftir æfingu því þá meltirðu það hraðar. Ég tek bara með mér duft í brúsa á æfingu og set vatn í hann þegar ég kem inn í búningsklefa. Á öðrum tímum mixa ég mjólk út í ef ég er heima.
Bætt við 26. maí 2008 - 23:29
Ef til vill ertu að setja alltof mikinn vökva með þessu, þú þarft ekkert rosalegt magn. Þetta er líklega ekki gott útþynnt með helling af vatni. Það hefur aldrei breytt neinu fyrir mig hvort um mjólk eða vatn er að ræða en vinur minn hefur nöldrað yfir þessu sama og þú. Ég gruna hann nú sterklega um að hella gommu með smá dufti.