Kíktu í heilsubúðir. Ég fer vanalega í “Góð heilsa gulli betri” nálægt Skólavörðustíg. Nota fjölvítamín blöndu sem er kölluð ‘Alive’, svo tek ég Omega hylki, og ‘Mobility Essentials’ sem styrkja liðina. Það er ekkert víst að ég haldi mig við þessa samsetningu endalaust. Aðalatriðin er að þig vanti ekki nein vítamín ( að þú fáir amk 100% dagsskammt … sem gæti verið pínu of lítið ef þú ert að æfa mjög mikið ), en annars eru vítamínin sem þú ættir helst að pæla í: C og E vítamín, Omega-3, plús eitthvað fyrir liðina. Ég get eiginlega ekki verið nákvæmari í bili þar sem ég er enn að dýpka þekkingu mína á hvaða vítamín skipta í raun máli fyrir íþróttir.