Ég hef aldrei notað þessi efni, þannig að ég get ekki talað af reynslu um þau.
Hinsvegar skilst mér að flest þessi efni virki bara eins og hver önnur örfandi efni, þau skrúfa upp efnaskiptin. Sem þýðir að þú brennir fleiri kkal í grunninn. Þetta dót er pottþétt ekki hollt að nota að staðaldri, þar sem þetta setur álag á hjarta og æðakerfi. Hvaða annað örfandi og ólöglegt efni gæti virkað jafn vel ef ekki mun betur, en það er líka því óhollara, og fokkar þér upp.
Þú verður líka að gæta þess að missa ekki vöðvamassann með fitunni. Ég held að eina leiðin til þess sé að lyfta með þessu ( sem flestir gera held ég ). Þú hefur líklega ekkert að gera með að taka þetta nema til þess að skera niður, og þá að æfa með það í huga; annað held ég að sé bara ómarkvisst hringl.
Þú færð íþm ekki meiri vöðvamassa af þessu ( ég hef aldrei heyrt um slíkt ) en þú gætir vel lækkað fituprósentuna hraðar, með réttu prógrammi með. Cardíó til að brenna og lyftingar til að halda örugglega í massann sem þú hefur.
En ég er ekki viss um að þetta sé góð hugmynd til lengri tíma litið, að vera að venja líkamann á svona hækjur, og venja sjálfan þig á svona hækjur. Líkaminn getur lært að brenna fitu með skilvirari hætti, en fæstir sem eru aðallega að lyfta ná að þjálfa líkamann upp í slíku. Ef þér gengur illa að lækka fituprósentuna er kannski hægt að nota þessi efni yfir eitthvað tímabil, en það helst auðvitað ekki ef þú hefur bara náð árangri með efninu.