Við skulum orða það þannig. Ef þú villt upplifa allra versta fylleríið þitt til þessa, þá er ein leiðin að detta í það á þunglyndislyfjum.
Þú er fínn meðan þú ert léttur, en um leið og þú ferð yfir þetta hárfína strik og verður fullur, þá geturðu orðið sjálfum þér og öðrum hættulegur.
Mitt allra allra allra versta fyllerí, sem olli því að ég drakk ekki í heilt ár á eftir, var þegar ég drakk einum sopa of mikið á þunglyndislyfjum ( Seroxat ( þetta er allt soldið svipað ) ). Ég fann hvernig ég missti gersamlega allt taumhald á sjálfum mér og réð hreinlega ekki við sjálfan mig. Það var eins og einhver annar væri við stjórnvölinn. Það fyllerí endaði með prívat heimkeyrslu í lögreglubíl, eftir að hafa gert sjálfan mig að algeru fífli, og slegið mann og annan.
Annað litlu skárra endaði með miklu drama, kýldi vin minn nokkrum sinnum og var kýldur sjálfur að öðrum vini mínum.
Sko allt þetta kann að hljóma mjög tame fyrir suma, en ef þú þekktir mig þá er þetta algjörlega út úr korti. Er mjög svona rólegur náungi og hef mikla óbeit á slagsmálum.
Þú gætir kannski fengið góðan vin til þess að hafa auga með þér, og ef þú ferð að verða undarlegur eða bara fullur, gefurðu honum fyrir fram leyfi til þess að gefa þér hint og jafnvel bara taka af þér áfengið. Svona ef þú getur stólað á viðkomandi. Svo lengi sem þú ert bara léttur ættirðu ekki að finna fyrir neinu. En maður veit aldrei, þetta er mjög persónubundið.
Hvað ég myndi gera. Ég myndi drekka eitt, tvö, þrjú glös með vinum mínum, við sérstök tilefni. En annars láta það vera. ;)