Ég hef aldrei heyrt um það að reykingar séu fitandi nei. Þær aftur á móti draga úr matarlyst sem gæti meira að segja haft grennandi áhrif en er allt annað en hollt samt. Ástæðan fyrir því að fólk fitnar aftur á móti þegar það er að reyna að hætta er sú að mjög margir fá sér eitthvað nart þegar þeim langar í sígó og þar sem þeim langar alltaf í sígó þá eru þau alltaf nartandi og fitna þar af leiðandi.