Mér létt brá. Ég sá þennan strák sem að var enginn kjúkklingur en djöfull leit hann ekki út fyrir að geta 135kg í bekknum.
Kom síðan í ljós að hann gat ekkert lyft þessu, þessir cm sem hann náði þessu upp var bara bouncið frá því þegar stöngin skoppaði á bringuni hans. =)
Svona smá ráðleggingar, halldið ykkur við minni þyngdir og reynið að taka þær rétt og löglega. Jafnvel þótt þú hefðir náð stöngini upp þá var þetta samt svo langt frá því að teljast lyfta.
Þú átt að stoppa með stöngina niðri, og þú mátt ekki lyfta rassinum frá bekknum. Þú getur náð spennu í hrygginn með því að spyrna fótunum í jörðina og náð þar af leiðandi meiri þyngdum en þú mátt ekki lyfta rassinum.
Geri ráð fyrir að þetta myndband eigi samt að vera meira djók heldur en raunverulegt æfinga myndband.
Mér var samt lítið skemmt..