Hvernig ör, ertu að meina slit? Annars ef þú ert að tala um slit þá er það ekki hægt, slit verða minna áberandi með tímanum en þau fara aldrei, t.d. er ég með gömul slit á höndunum og aftan á öxlunum útaf því að ég massaðist svo hratt á tímabili.
S.s. hverfa slit aldrei? Eins og ég er með slit á rassgatinu útaf því að það blés út þegar ég byrjaði að lyfta, þannig ég verð með það for ever? Það hefur reyndar minnkað töluvert en hverfur það aldrei?
“If you wanna get strong - downright strong- you gotta do the big one, the squat”.
Fer töluvert eftir hvernig örið er, mér sýnist að rauðir blettir (sem eru líklega nýmyndaðar háræðar og geta auðvitað dofnað með tímanum)séu helst meðhöndlaðir með C02 laser, myndi mæla með að þú talaðir við húðlækni ef þetta hefur verið lengi og er að trufla þig. Það er í sjálfu sér lítið hægt að gera við örum, nema auðvitað common sense sárameðhöndlun, halda svæðinu hreinu og leita til læknis ef sárið er alvarlegt. Ef bólur eða útbrot sem valda örum, er oftast hægt að meðhöndla sjúkdóminn og koma í veg fyrir frekari ör.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..