Ég held þetta sé að mestu della. Það er alveg satt að te hefur upp á margt að bjóða og er afar hollur drykkur. Hins vegar er til dæmis engin annar munur á grænu te og oolong-te en sá að það er beðið lengur með að þurrka oolong-te en grænt te. Báðar tetegundirnar koma af tejurtinni. Það er því einstaklega furðulegt að menn taki oolong-te sérstaklega fyrir sem heilsufæði. Ástæðan er sjálfsagt sú að teið heitir einkennilegu nafni og menn telja sjálfsagt að þetta sé eitthvað allt annað en venjulegt te. Taktu eftir að allar þessar síður eru verslunarsíður og ekki ein þeirra vísar í virt vísindarit fullyrðingum sínum til stuðnings.
Það er hins vegar margt til í því að te sé hollt. Mæli frekar með að þú lesir:
http://en.wikipedia.org/wiki/Potential_effects_of_tea_on_healthÞað er því engin ástæða til að kaupa sérstaklega Oolong-te í raun, ég breyti sjálfur til og drekk margar tegundir af tei og seyðum.