Daginn, ég hef verið að fá blóðnasir oft núna undanfarið, var bara að byrja allt í einu. Er þetta eitthvað alvarlegt eða eitthvað sem ég þarf að hafa áhyggjur af eða ?
Sumir gera það í svefni án þess að vita af því. hef lent í þessu áður og fór til læknis sem gaf mér eitthvað krem sem ég átti að setja í bómul og svo upp í nefið á mér.
Ef þetta eru sár þá skaltu, hversu ógeðslegt sem það hljómar, bera krem í nefið á þér. Varasalvar, vaselín og AD krem eru mjög góð (allt sem er eiginlega bara fita). Ég hef heyrt að penzim sé líka græðandi. Þú ert líklega bara með sár sem gróa illa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..