Ég fór á sínum tíma í brjóstaminnkun. Hún heppnaðist virkilega vel, en það sem þú þarft líka að gera þér grein fyrir hversu stór aðgerð þetta er og hversu langan tíma það tekur fyrir þig að jafna þig.
Svona aðgerð á vitanlega bara að vera seinasta úrræðið. Þú ert núna aðeins 16 ára gömul og það eru ekki margir lýtalæknar sem munu taka þig í svona aðgerð 1 2 og 3. Ég myndi fyrst tala við heimilislækni ef þú getur, því að það er líklegt að þér verði aðeins hleypt í svona stóra aðgerð ef að þessi brjóstastærð þín sé þér til trafala.