Langvarandi áhrif hafa verið eitthvað skoðað með faraldsfræði-rannsóknum, þetta er svosum búið að vera nógu lengi í almennri notkun, en það hefur ekki tekist að festa neitt ákveðið heilsuleysi á þá hópa sem neyttu aspartams meira en aðrir. Hinsvegar er erfitt að útiloka að eitthvað slíkt komi í ljós, það þykir bara afar ólíklegt.