Ég var bara að spá hvort að þetta væri mjög óhollt, fitandi og þar áfram. Ef þetta er ekki mikið óhollt ætla ég líklega að reyna að drekka minna af gosi og þetta í staðinn :)
'you look like a gay terrorist with a broken windscreen wiper and your face is ridiculous.'
Nei, þetta er ekki óhollt, nema í algjöru óhófi eins og allt annað. (Þarf virkilega að segja þetta? Því miður held ég). Hinsvegar er enn þá kolsýra í þessu svo að þetta veldur tanneyðingu eins og annað gos.
Alveg örugglega súrt. Hinsvegar er það alveg rétt hjá þér, hún veldur ekki tanneyðingu í hófi. Ekki frekar en gos eða ávaxtasafar. Rétt tannhirða og hófsemi halda tönnunum heilum.
það eru u.þ.b. 20 hitaeiningar í 100 ml. og til samanburðar má geta þess að það eru 25 hitaeiningar í 100 ml. af Gatorade og tæpar 50 hitaeiningar í 100 ml. af gosi.
Allt í lagi að drekka þetta. Bara passa sig að drekka ekki of mikið af þessu. Það er alveg slatti af vítamínum í þessu og eitthvað af fitulosandi vítamínum sem safnast upp í líkamanum. Það er samt bara ef maður er að drekka mjög mikið af þessu. Einn líter á dag skaðar ekki, veit ekki hvað þarf að vera mikið til að það fari að verða óhollt :)
tjah .. það er nú samt e-r smá slatti af sykri í þessu þannig að ef þú ert að reyna að minnka gos og þar með sykurneyslu þá væri toppur eða venjulegur kristall betri. En aftur á móti er þetta náttúrulega alveg fáranlega góður drykkur + hollari en t.d kók og svoleiðis.
En aftur á móti þá heyrði ég að þessi vítamín og það dæmi sem er í þessu sé hægt að taka of mikið af.. og sé í raun e-ð sem þú færð bara úr venjulegum mat. Og þess vegna sé þetta ekki selt í 2L flöskum heldur bara 1/2L. Eða e-ð álíka… Sel það ekki dýrara en ég keypti það !
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..