Hef tekið 1x27,5 með sitthvorri hendi og 2x 55 með báðum, en örugglega var það með einhverju smá svindli og líka eftir að hafa borðað kíló af pasta og kjúkling og lítra af mjólk. Ég veit að það hlýtur að vera óhollt, en mér fannst ég vera sterkari og orkumeiri í ræktinni eftirá sem er ekkert furðulegt. En annars þá hef ég líka tekið 45 með báðum 10x án þess að svindla. Núna tek ég í kringum 17,5 til 20 með hvorri og 35 með báðum og þá oftar, þar sem ég er að reyna að brenna aukabirgðunum eftir allt þetta át hehe.
Bætt við 6. mars 2007 - 00:21
Þegar ég segi með báðum meina ég með stöng.