Ef þú kíkir á erlend spjallsvæði um háreyðingar þá kemstu að því að flestir ef ekki allir sem hafa prófað svona krem hafa orðið fyrir vonbrigðum. Þeir sem hafa verstu reynsluna tala um að þetta sé ekkert annað en rakakrem sem lofar miklu, þeir sem fá jákvæðan árangur tala um fínari hárvöxt.
Efast um að það sé hægt að stöðva til framtíðar hárvöxt eingöngu með því að bera á krem. Því miður held ég að laser-meðferð sé það eina örugga til þess að fá varanlegan árangur.