Það ætti helst að reyna að komast hjá því að taka kreatín með Roaccutani, en ég efast um að það séu neinar milliverkanir, það helsta sem virðist vera er að kreatín bindur að einhverju leyti vatn í líkamanum, þannig að sennilega er enn mikilvægara að drekka nóg af vatni meðan maður er á Roaccutani. Ef ég væri þú myndi ég fá álit þess sem ávísaði roaccutaninu, bara hringja uppá læknastofuna og athuga hvort ekki er hægt að taka spurninguna sem skilaboð til læknisins.