Fyrirgefðu, ég stenst aldrei mátið þegar kemur að því að gera grín að stafsetningar- og málfræðivillum.
Það er hægt að kaupa einhver smálóð í Europris og stærri íþróttaverslunum eins og Intersport, en ég er nokkuð viss um að alvörugræjur þurfi að kaupa erlendis (á netinu).
Þau eru ekki keypt nógu oft til að það borgi sig fyrir verslanir að liggja með þau á lager.
Annars er best að fara bara í líkamsræktarstöð.