Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti sagt mér hvað er að stóru tánni minni. Málið er að mér líður í henni eins og það sé búið að deyfa hana með svona deyfilyfi sem maður fær þegar læknar gera littla aðgerð eða sauma mann. ég gat stungið mig til blóðs áður en ég fann fyrir einhverjum smá verkjum.
Ég var að spá í því hvort þetta gæti tengst vinnunni minni. ég vinn 10 tíma á dag við slátt og er alltaf í skóm með stáltá. þeir eru ekkert of littlir, en ég var að spá hvort að hristingurinn í vélinni gæti haft áhrif á taugarnar í tánni? eins furðulega og það hljómar…