Losna við þetta? Jú jú, eftir eitt, tvö ár ef þú vinnur markvisst að þessu. Ég hef verið með mjög slæma vöðvabólgu í bráðum þrjú ár. Það slæmt að ef ég hreyfi höndina fram og aftur heyrist brak. Voðalega spes. En ég hef getað náð að laga vöðvabólguna til muna með nokkrum aðferðum.
*Það er mikilvægt að ganga beinn í baki. Til þess að athuga hvort að þú gengur beinn í baki er hægt að taka prik og setja það á milli handanna og baksins þannir að það þrýisir mjóbakinu út… Arg, veit ekki hvernig ég get úskýrt þetta, en það er allavega hægt!
*Sjóðandi heit sturta gerir meira gagn en margir halda. Pointið er að fá blóðið til að streyma um þetta svæði í meira magni og með því að hita vöðvabólguna er auðveldara fyrir blóðið að streyma.
*Nudd gerir mest gagn. Dýrt, en með nuddi er verið að örva blóðflæðið um axlirnar.
*Hugsa jákvætt. Þeir sem hugsa jákvætt eru ekki eins spenntir og þeir sem hugsa neikvætt.
*Passa að spenna ekki efri hluta líkamans meira en þarf. Slaka á, ekki ýta öxlunum upp og gra sér grein fyrir hvenær þú ert að stífna upp.
*Bólgueyðandi krem gera mikið gagn og hitapokar.
*Teygjur. Teygjur örva blóðflæði og lykillinn að því að losna við vöðvabólgu er að örva blóðflæðið.