Ok
Segjum sem svo að þið ætlið á stera …. til hvers að taka einn mánuð ? Til hvers að kaupa sér 100 töflur að bola og éta 3 á dag ? Þetta gefur manni kanski smá boost en ekkert að viti.
Ef þið ætlið að gera þetta þá gerið þið það almennilega!
Svo eru allir fastir í þessu “bola” dæmi, BOLI er einn af eitruðustu sterunum í gangi, og allir virðast halda þetta sé skaðlaust því þetta er í töflum! CUT THE CRAP
Spurningjar frá gæja:
1. Er satt að ef þú ætlar að kaupa bola þá eiga töflurnar að vera bláar á litinn því bleiku virka ekkert?
svar: Það eru til bleikar, bláar og hvítar töflur og misstórar. Þetta eru bara mismunandi fyrirtæki sem framleiða þetta.
http://www.steroid.com/DIANABOL.phtml Hér getið þið séð allt um bola og nánar um tegundirnar.
2. Ef þú ætlar að taka inn sprautustera (Deki, Susta?) þá þarftu að taka inn útjöfnunarefni sem heitir HCG eftir kúrinn til þess að þú fáir ekki brjóst og annað slíkt?
svar: HCG er hormón sem er framleitt úr þvagi úr óléttum konum, þetta efni er ætlað til að hækka nátturlega testosteron framleiðslu eftir sterakúr. Það er líka hægt að fá ýmis önnur efni sem gera það sama, sumir mæla með að keyra á nokkrum í einu.
3. Ætti maður að vera á fæðubóterefnum með þessu?
s.s. Kreatíni, Próteini, Glútamíni og Próteini?
svar: Sterar og fæðubótaefni eru tvennt ólíkt. Protein og gainerar eru ekkert nema matur og eru ætlaðir til þess annaðhvort að bæta við kaloríum eða næringarþörf. Ég get alveg mælt með að nota Creatine allan ársins hring með litlum hléum, ekkert nema gott enda nátturulegt efni og engar þekktar aukaverkanir. Ég er ekkert personulega hrifinn af glutamini í fæðubótaformi en það er annar handleggur.
4. Þú segir að hjartað sé vöðvi sem stækkar líka með, en typpið á þér? Þar sem það er vöðvi líka?
svar: HEHE tippið er einhvað vefjasull, það stækkar ekki en eistun á þér GETA minnkað.
5. Ef ég mundi taka inn stera í 1 mánuð, segjum bara Bola, 3 töflur á dag og með mataræði allt á hreinu og æfingar líka (sem ég er með) hvað væri maður að bæta á sig miklu af pjúra vöðvum á 1 mánuði?
svar: Þetta er rosalega einstaklingsbundið, en prófaðu þetta bara - þegar þú hættir á bolanum léttistu aftur einhvað, bolinn bindur rosalegt vatn.
6. Og sömuleiðis hvað er 1 mánuður steranotkunar og lyftinga miðað við hve marga mánuði af fæðubótarefnum og lyftingum? Hvað er maður að græða mikinn tíma?
svar: sama og síðast, þetta er einstaklingsbundið, og hættu að líkja fæðubót við stera!!
7. Er hægt að panta stera til Íslands af www.steroids.com?
svar: ég hef nú ekki prófað það, mæli nú frekar með því að þú finnir þér einhvern sem er með þetta hérna á íslandi
8. Með hverju mælirðu fyrir mig? Ég er 16 ára gamall, 190 cm á hæð og er með þo nokkurn vöðva massa og er ekki byrjandi í lyftingum eða mataræði. Hvaða sterum ætti ég að byrja á? Sprautu? Bola? Hvað? Er eitthvað sem ég ætti að forðast?
svar: ekki byrja á sterum… þú þarft þess bara engan vegin strax, forðaðu þér frá mistökum sem aðrir gera svona ungi