Vissulega ættu flestir að minnka sykurneyslu, enda virðast heilu kynslóðirnar nærast að mestu á Cocoa Puffs, kóki, snakkflögum og sælgæti.
Hins vegar ber á það að líta að rétt fyrir og eftir æfingar er gott og jafnvel nauðsynlegt að sjá líkamanum fyrir dálitlu af einföldum sykrum. Þetta er einkum mikilvægt fyrir þá sem eru að reyna að byggja upp gæðamassann, en síður fyrir þá sem eru að reyna að bræða af sér flæðimassann.