Í fyrsta lagi, það eru engar töfralausnir þegar megrun er annars vegar. Þú þarft að éta minna en þú brennir, punktur. Nokkur atriði:
1 - Hitaeiningar í drykkjum virðast blekkja líkamann frekar en aðrar. Hættu að drekka hitaeiningaríka drykki eins og gos og orkudrykki. Drekktu ávaxtasafa í hófi og undanrennu frekar en nýmjólk.
2 - Próteinríkt fæði virðist minnka matarlyst. Þannig virkar Atkins kúrinn, ekki með því að breyta fituefnaskiptum á einhvern hátt eins og talið var.
3 - Borðaðu smámáltíðir milli mála. Vertu ekki svangur þegar kemur að stóru máltíðum dagsins.
4 - Vendu þig á að borða vel á morgnana.
5 - Ekki fá þér aftur á diskinn. Hættu að borða um leið og þú byrjar að verða saddur.
6 - Ekki að reyna að grennast mjög hratt. Ca. 500 hitaeiningar á dag (~20%) undir jafnstöðu er sennilega best.