Sko þannig er mál með vexti að ég er 15 ára piltur. Og getur einhver sagt mér hvar gott er að nálgast svona prógrom annars vegar fyrir matarræði og hinsvegar fyrir ræktina?!?“?”?!?
hjá einkaþjálfara??? það er líka til í flestum eða öllum líkamsræktastöðvum svona blað sem þú getur farið eftir í tækjasalnum hjá þeim… veit ekki með mataræði annað en að borða bara hollan mat…
Einkaþjálfarinn minn lét mig fá fínt matarprógram, get sent þér það ef þú vilt. Það er aðallega bara hollur matur, ekkert endilega fyrir svaka megrun eða e-ð. En samt mjög gott prógram… Ætla svo að fá æfingaprógram hjá honum líka, þar sem ég fer ekki til hans næstu þrjár vikurnar ca.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..