Á morgun miðvikudag verður haldinn fundur hjá þunglyndishópnum okkar sem erum á aldrinum 16-26 ára. Við hittumst eins og endra nær á efri hæðinni á Kaffi Viktor. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og eru allir þeir velkomnir sem eru að glíma við þunglyndi og aðra fylgikvilla þess.
Eftir alveg geggjað Idol parrtý á föstudaginn síðasta þá ætlum við bara að hafa venjulegan fund á morgun. Við ætlum að plana næsta gigg og hafa gaman.
Starfsemi hópsins er alltaf að aukast og aukast. Við stofnuðum hópinn í byrjun janúar og hafa alveg þó nokkrir haft samband við okkur og komið á fundina. Það er nefnilega svo gott við þessa fundi að þar getum við spjallað um okkar mál á okkar forsendum. Við erum sem eitt.
Ég vil benda ykkur á heimasíðu hópsins. Slóðin á hana er www.blog.central.is/gedheilsa. Endilega kíkja á síðuna og skoða það sem við erum að gera.
Ef einhverjar spurningar vakna þá er ykkur velkomið að hringja í okkur í eftirfarandi síma.
Dagný í síma 691 6014.
Ragnheiður í síma 696 0940 og
Valgeir í síma 824 6622