Það er útilokað að losna við fitu af ákveðnum stöðum öðruvísi en með fitusogi eða skurðaðgerð.
Þessar æfingar sem Ubergirl mælti með munu ekki gera neitt fyrir rassinn á þér. Sorry.
Eina leiðin til að minnka (megrast) er að éta minna en þú brennar. Semsagt, éta minna eða brenna meira.
Ég geri ráð fyrir að þú sért kona. Ef svo er þá er meiri fita í rassinum á þér en þú heldur. Það er bara fallegt á konum. Hvar á líkamanum fitan safnast helst er meðfætt og hún safnast helst á magann á körlum og rassinn á konum.
Í stuttu máli:
Hafðu ekki áhyggjur af stórum rassi. Þeir eru fallegir og eðlilegir á konum.
Fita fer síðast af þeim stað þar sem hún safnaðist fyrst.
Það er útilokað að megrast á einhverjum ákveðnum stað með æfingum, nuddi eða mataræði. Aðeins skurðaðgerðir geta það.
Það er aðeins ein leið til að megrast, að éta minna en maður brennir.