Þessi kúr er algjört rugl! Ég mundi ekkert byrja á þessu eða prufa þetta. Maður kannski léttist um einhver kíló, en hvað gerist þegar maður fer að borða aftur? Jú maður þyngist aftur og það um helming!! Ekki sniðugt.. Galdurinn við að léttast er að borða reglulega, ekkert endilega að minnka matarskammtinn og borða úr öllum fæðuflokkum. Borða þessar aðal máltíðir þ.e.a.s morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Fá sér svo grænmeti og ávexti inn á milli. Borða mikið grænmeti með öllum helstu máltíðum allt að kíló á dag, samkvæmt danska kúrnum. Sem er mjög góður kúr því hann virkar, enda er slagorðið “Borðaðu þig granna”! Ég veit um nokkra sem eru á þessum kúr sem hafa misst mörg kíló á heilbrigðan hátt. Það er ekki verið að léttast um nokkur kíló á viku, það er mælt með að léttast um svona 1 kíló til 1200 grömm. Þessi kúr virkar mjög vel.
En ég veit náttúrulega ekkert hvort þú þarft á þessum kúr á að halda eða einhverjum kúr, en ég ákvað bara að segja frá þessum frábæra og heilbrigða kúr;)