Virkar hydroxycut eitt og sér eða er hreyfingar þörf meðfram neyslu?<br><br><b>Muhammed Ali skrifaði:</b><br><hr><i>My toughest fight was with my first wife</i><br><h
Þetta er bara hjálpartæki og ekkert annað. Ef þú ert ekki að æfa eða hreyfa þig mikið þá gerir þetta að öllum líkindum voða lítið. Ég mundi hugsa mig lengi um áður en ég færi að eyða fleiri þúsundum í eitthvað svona. Þjálfun og mataræði skipta 99,99% máli. Ég held að þessi brennsluefni gagnist aðallega þeim sem eru grannir fyrir og vilja losna við síðustu 2 kílóin eða eitthvað álíka.
Hydroxycut'ið virkar að sjálfsögðu þó svo að engin hreyfing sé stunduð samhliða inntöku á því. Hins vegar er það þannig að Hydroxycut er hannað fyrir þá sem stunda þjálfun og vilja auka hraðann á fitutapi.
Þ.e.a.s. _já_, Hydroxycut virkar þó svo þú hreyfir þig ekki samhliða, en virknin verður aldrei jafn sýnileg og ef þú stundar hreyfingu samhliða inntöku. (Finnur e.t.v. fyrir að þú verður nokkuð ör eftir að þú byrjar að taka þetta inn).
Mjög svipað innihald í þessum vörum(er reyndar mjög erfitt að lesa hvað er í hydroxycut því muscletech eru með fáránlega innihaldslýsingar), nema helsti kostur Diet+Betalean eru að þær fara hægt í blóðið og því verður fitubrennslan í lengri tíman og virknin þægilegri(færð ekki skjálfta og “koffínsjokk”). Taktu eftir að Hydroxycut er MEIRA en helmingi dýrara!! Mitt álit er því augljóslega að það eru fáránleg kaup að fjárfesta í hydroxycut!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..