Var að skoða síðuna þína og mér sýnist þú nú ekki vera vinalaus! En ef þér finnst það er málið bara að hanga meira í kringum fólkið og spjalla við það og svona.
Varðandi að þér finnist þú vera feit:
Hvað ertu mörg kíló og hvað ertu há?
Ef þú gætir svarað þessu væri kannski líklegra að við hér á huga gætum hjálpað þér.
Annars er málið bara að fara í megrun og ef þú vilt VIRKILEGA verða mjórri, þá verðurðu að setja þér markmið og standa við það og hugsa um þegar þig langar rosalega mikið í nammi eða pizzu eða eitthvað að fá þér frekar ávexti eða grænmeti (banana, epli, peru, gulrót eða eitthvað).. það kemur rosalega á óvart en ef þú færð það svona á tilfinninguna að þig langi alls ekki í neitt nema nammi, prófaðu samt að fá þér t.d. banana og þeir eru mjög góðir!!
*Borðaðu 5 sinnum á dag en borðaðu mat í hófi, ekki of mikið.
*Drekktu mikið af vatni
*Borðaðu ávexti og grænmeti
*Borðaðu nammi og gos og svoleiðis einu sinni í viku.. leyfðu þér það annars líður þér bara illa!
*Farðu út að labba/skokka eins oft og þú getur, það gerir ótrúlega mikið!
*Farðu ekki of seint að sofa
Þetta er svona það helsta, en ég er örugglega að gleyma einhverju.
Varðandi það að þér finnist þú ljót (ef ég skil korkinn þinn rétt) þá geturðu nú lagað það á ýmsa vegu!
Sendu mér bara email á huga og þá get ég kannski hjálpað þér.. ég ætla ekki að hafa þetta lengra hérna! ;) En vonandi hjálpaði þetta =)
<br><br>Kv. Arkano
Sýnum meistara Kurt nú virðingu með því að skrifa alltaf NIRVANA með stórum stöfum eins og hann gerði :p hehhe
“I'm my own person - there's no one else in the world out there like me” - Avril Lavigne